Öku
nám

Hægt er að hefja ökunám 16 ára. Fyrstu skrefin eru að hafa samband, skrá sig í Ökuskóla 1 og hefja verklega ökutíma. Kennslan byggist upp skref fyrir skref, frá fyrstu ökutímum og þar til nemandi er tilbúinn í verklegt próf.

Hafa samband694-9515
Haukur Vigfússon – ökukennari

Ökukennari

Haukur Vigfússon

Hvernig byrjarðu

FERLIÐIÐ

Frá fyrsta ökutíma til fullnaðarskírteinis — 15 skref samkvæmt Samgöngustofu.

Skref 1

Finna ökukennara

Fyrsta skrefið í ökunáminu er að velja sér ökukennara. Spurðu um kennsluaðferðir, tímasetningar, kennsluáætlun, námsgögn, hvaða ökuskólar séu í boði og hvað kennslutíminn kosti.

Skref 2

Sækja um námsheimild

Til að hefja ökunámið þarft þú að sækja um ökuskírteini (námsheimild). Umsókn er send rafrænt á Ísland.is og í kjölfarið þarf að skila passamynd til embætta sýslumanns.

Skref 3

Ökunámsbók

Stafræn ökunámsbók heldur utan um framvindu námsins — ökuskóla, ökutíma, æfingaakstur og prófniðurstöður. Þú nálgast hana á Mínum síðum á Ísland.is.

Skref 4

Fyrsti ökutíminn

Bókaðu ökutíma með ökukennaranum þínum og þú getur hafið verklega hluta námsins. Kennari leiðbeinir þér í akstri frá grunni.

Skref 5

Ökuskóli 1

Bóklegt námskeið sem fer yfir skilning á umferðinni, umferðarreglur, umferðarmerki, umferðarsálfræði og undirbúning fyrir próf. Sumir ökuskólar bjóða upp á kennslu á öðrum tungumálum.

Skref 6

Ökutímar — undanfari æfingaaksturs

Það þarf að lágmarki 10 ökutíma til þess að ökunemi sé tilbúinn í æfingaakstur. Ökukennari metur hvenær þú ert tilbúinn.

Skref 7

Æfingaakstur

Til að aka með öðrum en ökukennara þarf leiðbeinandi þinn að sækja um heimild til æfingaaksturs. Æfingaleyfi er gefið út í allt að 18 mánuði.

Skref 8

Ökuskóli 2

Annað bóklegt námskeið þar sem þú velur þér ökuskóla og lýkur námskeiðinu. Byggir ofan á það sem þú lærðir í Ökuskóla 1.

Skref 9

Ökuskóli 3 / Ökugerði

Bóklegt og verklegt námskeið. Verklegi hlutinn fer fram í ökugerði þar sem þú lærir að meta hættuleg akstursskilyrði — ís, lausagrjót, áhrif áfengis og þreytu á akstur.

Skref 10

Bóklegt próf

Prófið samanstendur af 50 fullyrðingum sem svara á rétt eða rangt. Svara þarf 45 rétt til að standast prófið. Niðurstöður koma strax og ef þú fellur getur þú endurtekið prófið að viku liðinni.

Skref 11

Ökutímar — undanfari verklegs prófs

Gera má ráð fyrir 17–25 ökutímum í heildina. Lágmarksfjöldi ökutíma er 15. Kennari þinn undirbýr þig fyrir verklega prófið.

Skref 12

Verklegt próf

Prófið skiptist í munnlegan hluta (um ljós, stjórnbúnað og öryggisbúnað) og aksturspróf á tilgreindum leiðum. Ef heildarstigatala fer undir 80 hefur próftaki ekki staðist prófið.

Skref 13

Bráðabirgðaskírteini

Eftir að þú hefur staðist bæði bóklegt og verklegt próf gefur sýslumaður út bráðabirgðaskírteini. Það gildir í 1–3 ár.

Skref 14

Akstursmat

Áður en þú getur sótt um fullnaðarskírteini þarft þú að fara í akstursmat. Það felst í 30 mínútna akstursferlð með kennara, sjálfsmat og endurgjöf. Ekki er hægt að falla í akstursmati.

Skref 15

Fullnaðarskírteini

Þegar þú hefur ekið á bráðabirgðaskírteini í eitt ár án punkta vegna umferðarlagabrots og lokið akstursmati getur þú sótt um fullnaðarskírteini.

Tilbúinn að hefja ökunámið?

694-9515

KENNSLUBÍLLINN

Kennsla fer fram á Mazda CX-30 með SKYACTIV-G mild hybrid vél. Bíllinn er þægilegur í akstri og hentar vel fyrir nemendur sem eru að stíga sín fyrstu skref í akstri.

Mazda CX-30 kennslubíll

Tegund

Mazda CX-30

Eldsneyti

Bensín / Mild Hybrid

Drif

Framhjóladrif

Vél

SKYACTIV-G M Hybrid

Framleiðsluland

Japan