Til baka

Fróðleikur

Leiðin að mótorhjólaprófinu

Upplýsingar sóttar beint af Ísland.is.

AM bifhjól
AM15 ára+

Upp að 50cc / 4kW

Oft kallað skellinaðra eða vespa. Létt bifhjól hafa hámarksafl, mest 50cc bensínvél eða 4kW rafmagnsmótor. Lágmarks aldur er 15. ára.

A1 bifhjól
A117 ára+

Upp að 125cc / 11kW

Bifhjól á tveimur hjólum með eða án hliðarvagns, með slagrými sem er ekki yfir 125cc og afl sem er ekki yfir 11kW, á þremur hjólum með afl sem er ekki yfir 15kW. Lágmarksaldur er 17. ára.

A2 bifhjól
A219 ára+

Upp að 35kW

Bifhjól á tveimur hjólum, með eða án hliðarvagns, afl að hámarki 35kW, afl/þyngdarhlutfall að hámarki 0,2 kW/kg. Lágmarksaldur er 19. ára.

A bifhjól
A24 ára+eða 21+ með A2 í 2 ár

Ótakmarkað

Bifhjól á tveimur hjólum með eða án hliðarvagns. Bifhjól á þremur hjólum með afl meira en 15kW. Lágmarksaldur er 24. ára nema ef viðkomandi hefur haft A2 í tvö ár. Þá er lágmarksaldur 21. árs.